Það sem gerir mig einstakan sem skemmtikraft er blanda af reynslu, nærveru og hæfileikanum til að lesa salinn. Ég er ekki bara trúbador eða veislustjóri, heldur skapa ég stemningu þar sem fólk slakar á, tekur þátt og skemmtir sér af alvöru. Með 5 ára reynslu af alls kyns viðburðum hef ég lært að aðlaga mig að hverjum hópi, hvort sem það eru rólegar samverustundir, lífleg partý eða fjölskylduskemmtanir fyrir fólk á öllum aldri. Ég sameina tónlist, húmor, samskipti og góða orku þannig að hver viðburður fær sinn eigin karakter . Ég hef einnig verið sýnilegur á samfélagsmiðlum sem hjálpar mér að tengjast fólki á persónulegan og nútímalegan hátt. Markmiðið mitt er alltaf að fólk fari heim með bros á vör og minningar sem lifa lengur en síðasta lagið.